Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. mars 2015 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bílum, símum og veskjum stolið meðan leikmenn voru á æfingu
Emile Sinclair rekur boltann á Moulton College æfingasvæðinu.
Emile Sinclair rekur boltann á Moulton College æfingasvæðinu.
Mynd: Getty Images
Leikmenn Northampton Town eru örvæntingafullir eftir að hafa verið rændir meðan þeir voru að æfa á Moulton College æfingasvæðinu.

Stolið var rándýrum bílum, símum og veskjum af leikmönnunum sem hafa auglýst eftir þýfinu á samskiptamiðlum.

Málið er í rannsókn hjá lögreglu en þjófarnir stálu meðal annars hvítum Vauxhall Insignia, hvítum Volkswagen Scirocco og svörtum Mercedes C220.

Þá var einnig rænt Mulberry, Gucci og Armani veskjum, fjórum iPhone símum og úrum frá TAG Heuer og Breitling.
Athugasemdir
banner
banner
banner