Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. mars 2015 19:31
Alexander Freyr Tamimi
Mikel fjarri góðu gamni út mánuðinn
John Obi Mikel mun ekki spila fótbolta í mars.
John Obi Mikel mun ekki spila fótbolta í mars.
Mynd: Getty Images
John Obi Mikel, miðjumaður Chelsea, mun ekkert geta leikið með liðinu þar til í apríl eftir að hafa gengist undir litla aðgerð.

Nígeríski landsliðsmaðurinn hefur misst af síðustu fjórum leikjum Chelsea og staðfesti knattspyrnustjórinn Jose Mourinho að hann gefði gengist undir aðgerð.

,,Mikel fór í litla aðgerð. Við búumst við því að hann verði fjarri í um það bil mánuð, það er nú þegar komin vika," sagði Mourinho.

,,Við erum hvorki bjartsýnir nér svartsýnir. Ég býst við því að hann snúi aftur fyrstu vikuna í apríl."
Athugasemdir
banner
banner
banner