Ómar Friðriksson, hægri bakvörður Víkings, er á leið í Fram á láni en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Ómar hefur hafið æfingar með Fram en hann mun skrifa undir lánssamninginn við félagið á næstunni.
Ómar hefur hafið æfingar með Fram en hann mun skrifa undir lánssamninginn við félagið á næstunni.
Hinn 21 árs gamli Ómar er uppalinn hjá KA en hann kom til Víkings fyrir síðasta tímabil.
Í fyrra kom Ómar við sögu í fjórum leikjum hjá Víkingi í upphafi móts áður en hann missti sæti sitt í liðinu.
Í júlí fór hann til Grindavíkur á láni þar sem hann spilaði sjö leiki í 1. deildinni.
Athugasemdir