Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. mars 2015 17:04
Elvar Geir Magnússon
Sjá Emil og félagar til þess að Inzaghi missi vinnuna?
Inzaghi á hliðarlínunni.
Inzaghi á hliðarlínunni.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar tala um að Filippo Inzaghi gæti misst vinnuna sem þjálfari AC Milan ef hagstæð úrslit nást ekki gegn Verona á sunnudag. Emil Hallfreðsson leikur með Verona eins og flestir lesendur vita.

Inzaghi er á sínu fysta tímabili sem aðalþjálfari Milan en liðinu hefur ekki vegnað vel og situr í tíunda sæti A-deildarinnar.

Sögur herma að Milan hafi áhuga á að bjóða Vincenzo Montella, þjálfara Fiorentina, tilboð um að taka við stjórnartaumunum.

Corriere dello Sport segir að Montella hafi ekki áhuga á að yfirgefa Flórens meðan aðrir fjölmiðlamenn segja annað.

Fiorentina er í fimmta sæti, aðeins þremur stigum frá Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner