Eiður Smári Guðjohnsen var grátlega nálægt því að vera hetja Bolton þegar hann skoraði eina mark liðsins gegn Reading í ensku Championship deildinni í kvöld.
Eiður Smári hefur komið mjög sterkur inn í lið Bolton eftir áramót og kom hann liðinu í 1-0 gegn Reading á 60. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Íslenski sóknarmaðurinn, sem flestir landsmenn vilja nú sjá snúa aftur í íslenska landsliðið, skoraði með laglegu skoti eftir góðan undirbúning frá Adam Le Fondre. Hins vegar jafnaði Jamie Mackie metin í uppbótartíma.
Hér að neðan má sjá markið hans Eiðs.

Athugasemdir