Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. mars 2015 13:00
Fótbolti.net
Sjónvarpsþátturinn á fimmtudag: Mið-Ísland strákarnir mæta
Björn Bragi mætir á fimmtudaginn en óvíst er hvort Thierry Henry komi við sögu.
Björn Bragi mætir á fimmtudaginn en óvíst er hvort Thierry Henry komi við sögu.
Mynd: Twitter
Sjónvarpsþátturinn Fótbolti.net er á sínum stað á ÍNN klukkan 20:30 á fimmtudag.

Þátturinn er endursýndur klukkan 22:30 og á föstudag kemur upptaka af þættinum inn á Fótbolta.net.

Á fimmtudag munu þrír meðlimir úr uppistandshópnum Mið-Ísland kíkja í heimsókn og ræða fótboltann.

Þeir munu meðal annars ræða hvernig fótbolti hefur komið við sögu í uppistandi þeirra í gegnum tíðina og þá munu þeir ræða hvaða fótboltamaður í heiminum í dag væri líklegastur til að ná langt sem uppistandari.

Þáttastjórnandi er Magnús Már Einarsson.

Gestir þáttarins:
Björn Bragi Arnarsson
Halldór Halldórsson - Dóri DNA
Jóhann Alfreð Kristinsson

Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá upptöku úr fyrsta þætti (5. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr öðrum þætti (12. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr þriðja þætti (19. febrúar)
Smelltu hér til að sjá upptöku úr fjórða þætti (26. febrúar)
Athugasemdir
banner
banner
banner