Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. maí 2015 13:39
Arnar Geir Halldórsson
Dybala: Langar að spila í Meistaradeildinni
Eftirsóttur
Eftirsóttur
Mynd: Getty Images
Paulo Dybala, sóknarmaður Palermo, hefur verið reglulegur gestur í enskum slúðurblöðum í vetur.

Hann hefur verið orðaður við öll stærstu lið Englands en hann er verðmetinn á 30 milljónir punda.

Þessi 21 árs Argentínumaður hefur slegið í gegn í ítölsku deildinni í vetur en hann kom til Palermo árið 2012. Hann útilokar ekki brottför í sumar þó hann segist vera ánægður hjá Palermo.

„Það er mikil heiður að vera orðaður við svona stór lið og mig langar að spila í Meistaradeildinni einn daginn".

„Núna nýt ég augnabliksins hjá Palermo og reyni að gera mitt besta í hverjum leik. Við sjáum til hvað verður. Ég er ánægður á Ítalíu en einn daginn mun ég fara til annars lands",
segir Dybala.
Athugasemdir
banner