Rúnar Kristinsson og lærisveinar í Lilleström gerðu enn eitt jafnteflið í norsku úrvalsdeildinni í dag en liðið er með fjögur jafntefli eftir sex leiki og er í tíunda sæti.
1-1 var niðurstaðan á heimavelli gegn Valerenga.
1-1 var niðurstaðan á heimavelli gegn Valerenga.
Elías Már Ómarsson var ónotaður varamaður hjá Valerenga sem er í þriðja sæti.
Finnur Orri Margeirsson og Árni Vilhjálmsson léku allan leikinn fyrir Lilleström.
Björn Bergmann Sigurðarson og Rúrik Gíslason voru báðir í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar sem vann 2-1 sigur gegn Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni. FCK er í öðru sæti, níu stigum á eftir Midtjylland.
Í dönsku B-deildinni skoraði Kjartan Henry Finnbogason og bjargaði stigi fyrir Horsens sem er í fimmta sæti með 36 stig. Kjartan jafnaði í 1-1 sem urðu lokatölur.
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í Helsingborg töpuðu 3-1 fyrir toppliði Malmö í sænska boltanum. Helsingborg er í áttunda sæti.
Athugasemdir