Besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, Eden Hazard, var vitanlega í skýjunum eftir að Chelsea tryggði sér Englandsmeistaratitiinn í dag.
„Við eigum skilið að vera meistarar. Það eru allir ánægðir í dag".
„Stjórinn hefur gefið mér svo margt og ég get spilað minn besta leik á vellinum. Það er það mikilvægasta".
Hazard hefur verið frábær á tímabilinu og það var vel við hæfi að hann hafi tryggt sigurinn í dag og þar með Englandsmeistaratitilinn.
„Ég veit að liðið þarfnast mín. Ég er hér til að skora mörk. Við höfum allir gert vel á þessu tímabili", sagði Belginn að lokum.
Athugasemdir