Sex leikir voru í fyrstu umferð Borgunarbikarsins í dag. Leiknir Fáskrúðsfirði þurfti vítaspyrnukeppni til að vinna Huginn en Leiknismenn mæta Fjarðabyggð í næstu umferð.
Reynir Sandgerði flaug áfram og leikur gegn Selfossi næst og Völsungur vann sér inn leik gegn Magna,
Reynir Sandgerði flaug áfram og leikur gegn Selfossi næst og Völsungur vann sér inn leik gegn Magna,
Augnablik og Njarðvík unnu sína leiki og mætast í næstu umferð og Álftanes mun leika gegn Kríu.
Hjörtur Hjartarson skoraði eitt af mörkum Augnabliks í dag en liðið mætir Guðmundi Steinarssyni og hans lærisveinum í næstu umferð.
Leiknir F. 0 - 0 Huginn (6-5 í vítakeppni)
Ísbjörninn 0 - 9 Reynir Sandgerði
Markaskorara vantar.
Hvíti Riddarinn 2 - 7 Augnablik
Mörk Hvíta Riddarans: Haukur Eyþórsson og Axel Lárusson.
Mörk Augnabliks: Hreinn Bergs 3, Hjörtur Júlíus Hjartarson, Arnar Sigurðsson, Gunnar Örn Jónsson og Haraldur Birgisson.
Völsungur 2 - 0 KF
Mörk Völsungs: Jóhann Þórhallsson 2.
Njarðvík 8 - 0 Afríka
Mörk: Theodór Guðni Halldórsson 3, Bergþór Ingi Smárason 2, Róbert Örn Ólafsson, Arnór Svansson og Magnús Þór Magnússon.
Álftanes 2 - 0 KFS
Mörk: Guðbjörn Alexander Sæmundsson og Darri Steinn Konráðsson.
Athugasemdir