Titilbaráttan á Ítalíu er lokið og berjast nú liðin um næst bestu sætin í deildinni, en það eru sætin sem gefa þátttöku í Meistaradeild Evrópu.
Aðeins þrjú lið á Ítalíu fá sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en Juventus hefur þegar tryggt sér beint í riðlakeppnina.
Lazio og Roma berjast nú um síðustu tvö sætin en Napoli og Sampdoria fylgja fast á eftir. Roma og Lazio eiga því bæði mikilvæga leiki framundan en Roma mætir Genoa á meðan Lazio mætir Atalanta sem er í bullandi fallbaráttu.
Napoli mætir Milan í stórleik dagsins. Fiorentina fær Hörð Björgvin Magnússon og félaga í Cesena í heimsókn en Hörður er áfram utan hóps í kjölfar meiðsla sem hann hlaut eftir landsleikina gegn Kasakstan og Eistlandi.
Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona mæta þá Udinese í hörkuleik.
Leikir dagsins:
10:30 Roma - Genoa
13:00 Inter - Chievo
13:00 Atalanta - Lazio
13:00 Fiorentina - Cesena
13:00 Verona - Udinese
18:45 Napoli - Milan
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir