Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. maí 2015 15:59
Arnar Geir Halldórsson
Ítalía: Lazio mistókst að endurheimta annað sætið
Mynd: Getty Images
Íslendingarnir í Serie A voru báðir fjarri góðu gamni í dag en þeir Emil Hallfreðsson, leikmaður Hellas Verona og Hörður Björgvin Magnússon, Cesena, hafa misst af síðustu leikjum vegna meiðsla.

Lið þeirra töpuðu bæði en útlitið er svart hjá Cesena og þarf liðið á kraftaverki að halda til að bjarga sæti sínu í deildinni.

Lazio fór illa að ráði sínu en liðið gerði jafntefli við Atalanta og mistókst þar með að endurheimta annað sætið af Roma sem vann Genoa fyrr í dag.

Úrslit og markaskorarar dagsins.

Fiorentina 3 - 1 Cesena
1-0 Josip Ilicic ('31 , víti)
2-0 Josip Ilicic ('35 )
3-0 Alberto Gilardino ('56 )
3-1 Alejandro Rodriguez ('59 )

Inter 0 - 0 Chievo

Atalanta 1 - 1 Lazio
1-0 Giuseppe Biava ('49 )
1-1 Marco Parolo ('77 )

Verona 0 - 1 Udinese
0-1 Antonio Di Natale ('62 )
Rautt spjald: ,Jacopo Sala, Verona ('60) Rafael Marquez, Verona ('90)
Athugasemdir
banner
banner
banner