Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. maí 2015 12:28
Arnar Geir Halldórsson
Ítalía: Roma vann mikilvægan sigur
Mynd: Getty Images
Roma 2 - 0 Genoa
1-0 Seydou Doumbia ('35 )
2-0 Alessandro Florenzi ('90 )


Roma vann mikilvægan sigur á Genoa í ítalska boltanum í dag.

Fílbeinsstrendingurinn Seydou Doumbia skoraði fyrsta mark leiksins en þetta var annar leikurinn í röð sem hann skorar í. Doumbia kom til Roma í janúar á þessu ári og hefur verið að stimpla sig inn í liðið að undanförnu.

Alessandro Florenzi gulltryggði sigurinn með marki í uppbótartíma.

Roma á í harðri baráttu við Lazio um annað sæti deildarinnar en það gefur sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næsta ári á meðan að þriðja sætið þarf að fara í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Lazio getur farið upp fyrir Roma með sigri á Atalanta síðar í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner