Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   sun 03. maí 2015 19:37
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jói Harðar: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV.
Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV stýrði Eyjamönnum í fyrsta skipti í Pepsi deildinni í dag gegn Fjölni. Fjölnir vann sanngjarnan 1-0 sigur og var Jóhannes eðlilega ekki sáttur eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  0 ÍBV

„Það er ýmislegt hægt að segja, við vorum bara ekki nógu góðir, við spilum þetta upp í höndina á Fjölnismönnum, þeir spila þetta á sínum styrkleikum."

„Þeir vilja fá boltann á miðsvæðið og það var þangað sem við vorum að troða boltanum. Það er ekki nema síðustu 10-15 sem við náum að skapa eitthvað fram á við."

„Það er erfitt að koma með útskýringar núna, ég tel að við höfum undirbúið okkur mjög vel fyrir þennan leik og við vissum nákvæmlega hvernig Fjölnir myndi spila."

„Guðjón er búinn að vera stöðugur og mjög fínn í vetur og hann átti þess vegna skilið að spila í dag og mér fannst hann standa sig vel í dag." sagði Jóhannes að lokum.
Athugasemdir
banner
banner