Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   sun 03. maí 2015 23:12
Lárus Ingi Magnússon
Kristján Guðmunds: Verða að taka ábyrgð
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Keflvíkingar fengu heldur betur skell í fyrsta leik sumarsins í Pepsi-deild karla þegar Víkingar komust í heimsókn. 1-3 tap gegn Víkingum staðreynd og öll mörk Víkinga úr föstum leikatriðum.

Það gladdi þjálfara Keflvíkinga, Kristján Guðmundsson lítið.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 Víkingur R.

„Við ræddum um þetta fyrir leikinn og höfum talað um þetta áður. Leikmenn verða að taka ábyrgð þegar varist er í föstum leikatriðum. Það misfórst núna og menn voru farnir að setja ábyrgðina yfir á aðra."

„Það sem við ætluðum að gera í uppsettum sóknarleik gekk ekki alveg eftir. Við lögðum ekki í það sem við vorum búnir að setja upp. Við reyndum en það gekk ekki nægilega vel. Við vorum einnig ekki nægilega góðir að stilla upp í vörn eftir að við missum boltann," sagði Kristján sem segir að fyrsta markið hafi verið mikið áfall fyrir liðið.

„Fyrsta markið sem við fengum á okkur stuðaði okkur of mikið. Við duttum illa niður þar. Við komum hinsvegar til baka með fína kafla í seinni hálfleik. Við getum betur og eigum eftir að verða betri."

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner