Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. maí 2015 15:25
Arnar Geir Halldórsson
Mourinho: Erfiðasta deild í heimi
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hrósaði sínum mönnum í hástert eftir að hafa landað Englandsmeistaratitlinum.

Mourinho gerði Chelsea tvisvar að Englandsmeisturum í fyrri stjóratíð sinni hjá félaginu en hann kom aftur til Englands sumarið 2013 eftir nokkur ár á Ítalíu og Spáni þar sem hann vann Serie A með Inter og La Liga með Real Madrid.

„Ég kom til baka til að gefa allt sem ég á til að verða Englandsmeistari. Þegar ég kom til baka vissi ég að ég var að koma til baka til að vinna erfiðustu deild í heimi. Og við höfum gert það", sagði sigurreifur Mourinho eftir leikinn í dag.

„Hver einasti titill er afleiðing af mikilli vinnu og við höfum ástæðu til að vera ánægðir og stoltir. Frá upphafi leiktíðar höfum við ekki fengið neitt gefins. Við höfum unnið fyrir þessu öllu".
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner