Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. maí 2015 15:45
Arnar Geir Halldórsson
Noregur: Matti Vill skoraði og lagði upp í sigri
Mynd: Vefur Start
Matthías Vilhjálmsson var á skotskónum í norska boltanum í dag.

Matthías var í byrjunarliði Start líkt og Guðmundur Kristjánsson þegar liðið fékk Tromsö í heimsókn.

Matthías kom Start í 2-0 eftir átján mínútna leik en leiknum lauk með 3-1 sigri Start. Matthías lagði upp þriðja mark Start.

Guðmundur nældi sér í gult spjald á lokaandartökum leiksins.

Ingvar Jónsson sat á varamannabekknum allan tímann.

Þetta var þriðja mark Matthíasar á tímabilinu en Start er í 7.sæti með átta stig eftir sex umferðir.
Athugasemdir
banner
banner