Óttar Bjarni Guðmundsson, leikmaður Leiknis stýrði vörn sinna manna af mikilli fagmennsku er liðið jarðaði Valsmenn, 3-0 á útivelli í kvöld.
Hann var ánægður með sigurinn, sem var nokkuð öruggur hjá nýliðunum í sínum fyrsta leik í efstu deild.
Hann var ánægður með sigurinn, sem var nokkuð öruggur hjá nýliðunum í sínum fyrsta leik í efstu deild.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 3 Leiknir R.
„Það er frábært að koma hingað og hefja drauminn í raun og veru og byrja á 3-0 útisigri á Val. Þetta er eins og best er á kosið," sagði fyrirliðinn, Óttar Bjarni sem var ánægður með hvernig liðið kom tilbúið til leiks.
„Við ákváðum að koma inn í leikinn með látum og stimpla okkur inn strax. Staðin fyrir að vera skrekk í byrjun og hleypa þeim inn í leikinn. Það gefur okkur síðan aukið sjálfstraust að halda hreinu."
„Við vorum búnir að undirbúa þennan leik mjög lengi. Við vissum alveg hvað við værum að fara út í."
Það var full stúkan á Vodafone-vellinum og vel mætt Leiknismegin. Þeir létu vel í sér heyra.
„Allt Æsufellið var mætt. Þetta var gjörsamlega geggjað. Vonandi heldur þetta áfram út sumarið. Stuðningsmennirnir eiga mikinn þátt í þessum sigri."
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir