Stórleikur fyrstu umferðar Pepsi-deildarinnar verður á morgun þegar KR og FH eigast við en allir miðlar spá þessum liðum í einhverjum af þremur efstu sætum.
Rauði baróninn sjálfur, Garðar Örn Hinriksson, fær það verkefni að dæma leikinn en Gylfi Már Sigurðsson og Birkir Sigurðarson verða aðstoðardómarar. Skiltadómari verður Valgeir Valgeirsson.
Garðar er reyndasti dómari deildarinnar í ár en hann er að hefja sitt sautjánda tímabil í efstu deild.
Leikurinn á morgun verður á KR-vellinum og hefst hann 19:15.
Dómarar:
Fjölnir - ÍBV: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Stjarnan - ÍA: Þóroddur Hjaltalín
Valur - Leiknir: Valgeir Valgeirsson
Keflavík - Víkingur: Erlendur Eiríksson
KR - FH: Garðar Örn Hinriksson
Breyting verður á umfjöllun Fótbolta.net um Pepsi-deildina í sumar. Í staðinn fyrir umfjöllun verður sérstök skýrsla en þar fær dómarinn meðal annars einkunn frá fréttaritara okkar á vellinum.
Athugasemdir