sun 03. maí 2015 07:30
Fótbolti.net
Veistu meira um íslenska boltann en aðrir?
Mynd: Fótbolti.net
Gary Martin er vinsæll í leiknum.
Gary Martin er vinsæll í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Fjórða árið í röð stendur Fótbolti.net fyrir Draumaliðsleik í Pepsi-deild karla. Að þessu sinni er Brammer aðalstyrktaraðili deildarinnar en um er að ræða opinberan Draumaliðsdeildarleik Pepsi-deildarinnar í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Hver í vinahópnum veit mest um íslenska boltann? Setjið upp skemmtilega keppni í einkadeild og takið þátt í Draumaliðsdeildinni í sumar.

Hægt er að búa til lið selja leikmenn ótakmarkað og gera breytingar á liðinu áður en leikmannaglugginn lokar klukkan 16:00 í dag, klukkutíma fyrir fyrstu leiki deildarinnar.

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Hægt er að skrá lið til leiks og gera breytingar á liðinu sínu til klukkan 16:00 í dag þegar fyrsta umferðin fer fram.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Varstu með í fyrra?
Notendur sem voru skráðir í fyrra eru ennþá skráðir í kerfið. Ef þú manst ekki lykilorðið getur þú fengið sendan tölvupóst með leiðbeiningum um hvernig þeir setja nýtt lykilorð.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Draumaliðsdeild Brammer er opinber samstarfsaðili Íslensks Toppfótbolta og er starfræktur með leyfi hans.

Brammer, styrktaraðili leiksins í ár, er helsti dreifingaraðili Evrópu innan viðhalds-, viðgerða- og varahluta, og tengdrar þjónustu. Fyrirtækið býður afar breitt vöruúrval, þar á meðal: Legur, drifbúnað, loft- og vökvakerfi, verkfæri og öryggis- og heilsuvörur.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner