Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. maí 2016 21:43
Óðinn Svan Óðinsson
Griezmann: Við þurfum að halda okkur á jörðinni
Griezmann hefur verið magnaður í vetur
Griezmann hefur verið magnaður í vetur
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann var hetja Atletico Madrid þegar hann skoraði útvivallarmarkið mikilvæga sem tryggði liðni í úrslitaleikinn eftir frábæran leik gegn Bayern Munchen.

„Við erum mjög ánægðir, þetta var erfiður leikur og við vorum að leika gegn frábæru liði. Við þurftum að verjast og skora mark og það er það sem við gerðum,” sagði Griezmann í samtali við fjölmiðla eftir leikinn.

„Við þurfum að halda okkur á jörðinni, fókusa á deildina og úrslitaleikinn, eftir það munum við hafa tíma til að hugsa um þetta.”

Griezmann og félagar mæta annaðhvort Real Madrid eða Manchester City en liðin eigast við annað kvöld.

Úrslitaleikurinn fer svo fram á San Siro vellinum í Milano þann 28. maí.
Athugasemdir
banner
banner