Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 03. maí 2016 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Zlatan sá um atvinnuviðtal hjá Vitamin Well
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic á fyrirtækið Vitamin Well sem selur íþróttadrykki og er það partur af auglýsingaherferð fyrirtækisins að taka Zlatan upp þegar hann sinnir ýmsum verkum innan fyrirtækisins.

Zlatan hefur þegar séð um starfsviðtal hjá Vitamin Well og látið sendil fá Vitamin Well til að fara með á hjóli, en hér fyrir neðan er hægt að sjá annað atvinnuviðtalið sem Zlatan sér um fyrir fyrirtækið.

Auglýsingaherferðin byggist á því að gefnir eru út þættir sem heita Zlatan@work eða Zlatan í vinnunni.

Í nýjasta þættinum mætir finnsk kona í atvinnuviðtal til Zlatan og deilir því með honum að uppáhaldsleikmaðurinn hennar sé Lionel Messi. Þá tekur hún einnig fram að Cristiano Ronaldo sé langt frá því að vera í uppáhaldi hjá sér.

Síða fyrirtækisins á Youtube

Facebook síða Vitamin Well á Íslandi


Athugasemdir
banner
banner
banner