Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. maí 2016 14:02
Magnús Már Einarsson
Rose biðst afsökunar á hegðun sinni
Mynd: Getty Images
Danny Rose, varnarmaður Tottenham, hefur beðist afsökunar á hegðun leikmanna í 2-2 jafnteflinu gegn Chelsea í gær.

12 gul spjöld fóru á loft í leiknum en tvívegis urðu mikil læti þegar leikmönnum lenti saman.

„Það er ekki gott fyrir krakka á vellinum að sjá þetta né krakka sem horfðu í sjónvarpinu. Ég biðst afsökunar ef þetta leit illa út í sjónvarpinu," sagði Rose.

„Þetta er grannaslagur á London og það má búast við þessu. Við vildum vinna og þeir vildu stoppa okkur í titilbaráttunni."

„Ég hef ekkert slæmt að segja um Chelsea. Þetta eru leikirnir sem þú vilt taka þátt í. Þetta var frábær leikur."

Athugasemdir
banner
banner
banner