banner
   þri 03. maí 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Wes Morgan: Vona að ég fari ekki að gráta
Captain Morgan.
Captain Morgan.
Mynd: Getty Images
Wes Morgan, fyrirliði Leicester, segist vonast til að fara ekki að gráta þegar hann lyftir titlinum á laugardag.

Leicester tryggði sér í gær enska meistaratitilinn í fyrsta skipti og Morgan lyftir titlinum eftir leikinn gegn Everton um helgina.

„Ég verð að reyna að halda aftur af tárunum," sagði Morgan.

„Þetta verður mjög tilfinningaþrungið. Þetta er stærsta augnablik ferilsins og ég get ekki beðið eftir að lyfta titlinum."

„Þetta er afrek sem verður mögulega aldrei unnið aftur svo maður er að njóta þess...ég get ekki beðið eftir laugardeginum."

Athugasemdir
banner
banner