Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, sem tekur á móti Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildrinnar á morgun segir að stjarna liðsins, Cristiano Ronaldo verði með í leiknum.
Ronaldo hefur verið frá vegna meiðsla og misst af þremur síðustu leikjum Madrídinga. Hann virðist nú hafa náð fullum bata og verður klár fyrir leikinn mikilvæga gegn City.
Það eru hins vegar ekki bara góðar fréttir úr herbúðum Madrídinga því Karim Benzema, framherji liðsins sem meiddist í fyrri leik liðanna og Casemiro eru báðir tæpir fyrir leikinn.

„ Cristiano er orðinn 100% klár en það er ekki það sama að segja um Casemiro og Benzema,” sagði Zidane á blaðamannafundi fyrir leikinn.
„ Ég væri til í að spila þeim báðum en það er ekki svo einfalt, aðrir leikmenn munu spila og gera það vel. Við viljum ekki taka neinar áhættur.”
Athugasemdir