Lee Cattermole hefur skrifað undir nýjan sex ára samning við Sunderland.
Cattermole var samningsbundinn í eitt ár í viðbót en nú er hann með samning til ársins 2021.
Cattermole var samningsbundinn í eitt ár í viðbót en nú er hann með samning til ársins 2021.
Hinn 27 ára gamli Cattermole slapp við að fá rautt spjald á síðasta tímabili en það var í fyrsta skipti sem hann frá 2007/2008 sem hann fer í gegnum tímabilið án þess að fá brottvísun.
Þess í stað ákvað Cattermole að einbeita sér að gulu spjöldunum en hann fékk 14 gul spjöld í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili sem er jöfnun á meti.
Cattermole var nálægt því að fara til Stoke í janúar 2014 en hann kann vel við sig hjá Sunderland og ætlar ekki að fara neitt á næstunni.
Athugasemdir