Næstsíðasti leikur Suður-Ameríku bikarsins fer fram seint í kvöld þegar Perú mætir Paragvæ skömmu fyrir miðnætti.
Úrslitaleikurinn verður spilaður daginn eftir þar sem heimamenn í Síle mæta mögnuðu liði Argentínu sem rústaði Paragvæ í undanúrslitum.
Úrslitaleikurinn verður spilaður daginn eftir þar sem heimamenn í Síle mæta mögnuðu liði Argentínu sem rústaði Paragvæ í undanúrslitum.
Péru sló Bólivíu úr leik í 8-liða úrslitum en tapaði fyrir Síle í undanúrslitum á meðan Paragvæ sendi Brasilíu heim fyrir niðurlæginguna gegn Argentínu.
Lionel Messi átti stórkostlegan leik fyrir Argentínu og lagði upp þrjú af sex mörkum.
Leikur kvöldsins:
23:30 Perú - Paragvæ
Athugasemdir