Orkumótið fór fram í Vestmannaeyjum um helgina en þar öttu kappi leikmenn í 6. flokki karla.
Eysteinn Rúnarsson, leikmaður Grindavikur gerði sannkallað draumamark í leik gegn Haukum á mótinu.
Ekki dregur það úr gæðunum að um úrslitamark var að ræða, þegar 20 sekúndur lifðu af leiktímanum. Hver einasti leikmaður Barcelona eða Real Madrid mætti vera stoltur af slíkum tilþrifum.
Eysteinn er sonur Rúnars Sigurjónssonar og Ragnheiðar Þóru Ólafsdóttur sem hafa verið samofin fótboltastarfinu í Grindavík um áratuga skeið.
Sjón er sögu ríkari en markið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir