Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 03. ágúst 2015 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bendtner segir Wolfsburg geta keppt við Bayern
Nicklas Bendtner
Nicklas Bendtner
Mynd: Getty Images
Nicklas Bendtner segir að Wolfsburg hafa sannað að þeir geti keppt við Bayern Munchen um þýskalands titilinn eftir að hafa unnið þá í ofurbikarnum.

Daninn skoraði jöfnunarmark liðsins á síðustu mínútu leiksins og skoraði síðan úr lokavítinu í vítaspyrnukeppni og tryggði Wolfsburg sigur.

„Það er gott að við höfum sannað það strax að við getum keppt við lið eins og Bayern," sagði Daninn magnaði.

„Það búast allir við því að þeir vinni deildina því þeir eru með söguna og leikmennina. En við tökum einn leik fyrir í einu og sjáum hvar við endum."

„Markið mitt var gott en frammistaðan hjá liðinu var betri."
Athugasemdir
banner
banner
banner