Enner Valencia, framherji West Ham verður frá næstu 2-3 mánuði.
Valencia setti inn færslu á Twitter þar sem hann staðfesti að hann þurfti ekki aðgerð vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í Evrópudeildinni gegn Astra Giurgiu.
West Ham hefur hins vegar komið fram og sagt að Ekvadorinn gæti þurft að gangast undir aðgerð en hann er meiddur í hægra hné.
Valencia skoraði opnunar mark liðsins í 2-2 jafnteflinu gegn rúmenska liðinu.
Athugasemdir