Stevan Jovetic var himinlifandi með að spila fótbolta á ný eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik með Inter í gær en liðið tapaði 1-0 fyrir Galatasaray í vináttuleik.
Framherjinn kom á 18 mánaða lánssamning frá Manchester City á föstudag.
Svartfellingurinn náði ekki að koma í veg fyrir tap en hann var ánægður með að fá að spila.
„Þetta var góð tilfinning, ég hafði ekki spilað lengi, seinast spilaði ég með landsliðinu, eftir það hef ég bara æft," sagði Jovetic.
„Ég er ánægður miðað við að þetta var fyrsti leikurinn minn. Mér líður vel líkamlega en ég þarf að æfa meira."
Athugasemdir