Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 03. ágúst 2015 23:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Koke segir Atletico geta unnið deildina
Koke
Koke
Mynd: Getty Images
Koke, miðjumaður Atletico Madrid, hefur varað Barcelona og Real Madrid við og segir Atletico Madrid hafa gæðin í að vinna La Liga.

Atletico vann deildina árið 2014 en enduðu svo í fjórða sæti á síðustu leiktíð.

Liðið hefur fengið til sín góða leikmenn í sumar en Jackson Martinez kom frá Porto og Luciano Vietto kom einnig til liðsins.

„Liðið hefur æft vel og við erum að vinna mjög mikið. Ég trúi því að við getum keppt við Real Madrid og Barcelona."

„Það eru komnir góðir leikmenn hérna og við erum bara að verða betri," sagði Koke.
Athugasemdir
banner
banner
banner