Nordsjælland vann í dag mikilvægan 2-1 sigur á Álaborg í dösnku úrvalsdeildinni.
Liðið var búið að tapa fyrstu tveim leikjum sínum í deildinni en þeim tókst að snúa því við í dag.
Bruninho kom Nordsjælland yfir eftir 22 mínútur og Marcus Ingvartsen bætti við stuttu fyrir leikslok.
Kasper Risgard minnkaði muninn alveg í lokin en lokatölur urðu 2-1.
Adam Örn Arnarson og Guðmundur Þórarinsson spiluðu allan leikinn fyrir Nordsjælland en Rúnar Alex Rúnarson er varamarkmaður liðsins.
Athugasemdir