Einar Björn Árnason, Einsi Kaldi, er kokkur íslenska landsliðsins en hann fór með liðinu til Amestardam til að sjá um að elda ofan í landsliðið fyrir leikinn gegn Hollandi í kvöld.
„Það eru einhverjir sem gera kröfur inn á milli en það er ekki mikið. Þetta eru ægilega þægilegir strákar," sagði Einsi við Fótbolta.net í dag.
„Þó að að séu frábærir matreiðslumenn á hótelinu þá vilja menn að maturinn sé fjölbreytilega unninn. Maturinn er stórt partur af prógraminu og ég reyni að gera þetta fjölbreytilegt."
„Þetta er eins og að gefa grunnskólanum mat, þegar maður gefur sumum mat. Menn eru að plokka laukinn og paprikuna upp úr. Þeir eru samt hrikalega duglegir að borða og ánægðir matinn."

Einar er bjartsýnn fyrir leikinn í kvöld. „Það er ótrúlegt að sjá hvernig Heimir og Lars mótívera hópinn. Það er ótrulega mikil fagmennska í kringum þetta og ég held að við vinnum þennan leik í kvöld."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir