„Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur. Þetta fer með okkur lang leiðina til Frakklands," sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 1-0 sigurinn á Hollandi í kvöld.
Stig nægir til að komast áfram á EM en Gylfi hefur háleitari markmið. „Viljum við ekki vinna riðilinn? Þá erum við í betri stöðu þegar er dregið í lokariðlana."
Stig nægir til að komast áfram á EM en Gylfi hefur háleitari markmið. „Viljum við ekki vinna riðilinn? Þá erum við í betri stöðu þegar er dregið í lokariðlana."
Gylfi skoraði eina markið úr vítaspyrnu en Hollendingar misstu Bruno Martins Indi af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik.
„Það var þægilegt að sjá Robben fara út af meiddur og þegar hann fær rautt spjald. Það gerði þetta auðveldara fyrir okkur. Við fengum víti og skoruðum en síðan var þetta vörn í margar mínútur. Við börðumst fyrir þessu fram á síðustu mínútu."
Vítaspyrnan sem Gylfi skoraði úr var í upphafi síðari hálfleiks.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég er stressaður fyrir víti. Ég byrjaði að hugsa aðeins of langt og að þetta væri sénsinn fyrir okkur að komast alla leið á EM. Ég hafði á tilfinningunni í gær að við myndum fá víti og ég var búinn að velja mér horn. Ég skipti ekkert um skoðun."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir