Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. september 2015 15:30
Elvar Geir Magnússon
Marco Reus enn og aftur meiddur
Marco Reus meiddur... ekki í fyrsta sinn.
Marco Reus meiddur... ekki í fyrsta sinn.
Mynd: Getty Images
Marco Reus, vængmaður Dortmund, er enn og aftur meiddur en hann getur ekki tekið þátt í leikjum þýska landsliðsins gegn Póllandi og Skotlandi.

Reus er meiddur á tá en hann varð fyrir meiðslunum þegar Dortmund vann Herthu Berlín í þýsku bundesligunni.

Reus yfirgaf liðshótelið á miðvikudagskvöld eftir að læknar Þýskalands uppgötvuðu meiðslin.

Reus er ótrúlega meiðslahrjáður og missti af HM í Brasilíu í fyrra.

Þýskaland mætir Póllandi á morgun og svo Skotlandi í Glasgow þremur. Þýskaland er í öðru sæti riðilsins með 13 stig úr sex leikjum, einu stigi á eftir Póllandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner