Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 03. september 2015 23:11
Magnús Már Einarsson
Óli Skúla: Extra plús að hoppa inn á
Icelandair
Ólafur Ingi lifir sig inn í fagnaðarlætin í leikslok.
Ólafur Ingi lifir sig inn í fagnaðarlætin í leikslok.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason, miðjumaður íslenska landsliðsins, kom inn á sem varamaður í stórkostlegum 1-0 sigri gegn Hollandi í Amsterdam í undankeppni EM í kvöld.

Ólafur Ingi var ekki valinn í upphaflegan hóp en kom inn á vegna meiðsla Emils Hallfreðssonar. Skyndilega var hann svo kominn inn á völlinn undir lokin.

„Það er bara æðislegt að fá að taka þátt í þessu, þetta er frábær sigur. Maður var ekki í upprunalega hópnum þannig það var extra plús að fá að hoppa inn á," sagði Ólafur Ingi við Fótbolta.net.

„Mér fannst þeir ógna voða lítið, auðvitað hjálpaði þegar þeir fá mann út af en mér fannst við bara spila þetta gríðarlega vel, við vorum ekki að taka neina sénsa eða gefa þeim óþarfa skyndisóknir eða spila þetta upp í hendurnar á þeim. Við byrjum seinni hálfleik gríðarlega vel og fáum víti og skorum og erum svo bara solid. Þeir eiga nokkur skotfæri eins og búast má við en Hannes gerði vel."

Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner