Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. september 2015 17:52
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni EM: Aserar héldu Króötum í skefjum
Mandzukic tókst ekki að rjúfa þykkan múr Aseranna.
Mandzukic tókst ekki að rjúfa þykkan múr Aseranna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aserbaídsjan 0 - 0 Króatía

Króatía er á toppi H-riðils eftir markalaust jafntefli við Aserbaídsjan í fyrsta leik dagsins í undankeppni EM.

Króatía var með eins stigs forskot á Ítalíu fyrir leikinn en nú geta Ítalir náð toppsæti riðilsins með sigri gegn botnliði Möltu.

Aserar voru skipulagðir og beittu skyndisóknum. Þeir leyfðu Króötum að halda boltanum og tókst að halda hreinu.

Aserbaídsjan er í næstneðsta sæti riðilsins með fimm stig eftir sjö umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner