Í dag er komið að stóru stundinni. Klukkan 18:45 mun Aron Einar Gunnarsson leiða landslið Íslands út á Amsterdam Arena í Hollandi í sjöundu umferð undankeppni EM.
Ísland er á toppi riðilsins með 15 stig en Hollendingar eru í þriðja sæti með 10 stig.
Á sama tíma fara fram tveir aðrir leikir í riðlinum. Tyrkir, hafa átta stig, fá Lettland í heimsókn en Lettar eru með þrjú stig.
Í Tékklandi verða Kasakar í heimsókn en Tékkar eru í öðru sæti með 13 stig á meðan Kasakar verma botnsætið og hafa aðeins fengið eitt stig.
ÁFRAM ÍSLAND!
A-karla EM 2016
18:45 Tékkland-Kasakstan
18:45 Tyrkland-Lettland
18:45 Holland-Ísland (Amsterdam Arena)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir