Ásmundur Arnarsson verður ekki þjálfari ÍBV næsta sumar. Þetta staðfesti hann eftir lokaumferðina í dag. Það er ljóst að Eyjamenn þurfa að fara í þjálfaraleit en Jóhannes Harðarson mun ekki snúa aftur.
ÍBV náði að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni eftir að hafa verið í fallbaráttu í sumar.
ÍBV náði að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni eftir að hafa verið í fallbaráttu í sumar.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 ÍA
„Það kom til greina að ég myndi halda áfram og við höfum rætt málin og spáð í spilin. Ég er með stóra fjölskyldu og ýmislegt í gangi uppi á landi. Ég hef tilkynnt þeim að þetta gangi ekki upp og því miður mun ég ekki halda áfram," segir Ásmundur.
Ásmundur er orðaður við þjálfarastarfið hjá Fram en Pétur Pétursson er hættur.
„Hvað verður mun bara koma í ljós. Fyrsta skref var að klára hlutina hér."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir