Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 03. október 2015 16:45
Gabríel Sighvatsson
Gulli Jóns: Hefði viljað að mótið héldi áfram
Gulli Jóns má vera sáttur með sumarið.
Gulli Jóns má vera sáttur með sumarið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, var að vonum ánægður eftir að hans menn kláruðu tímabilið með 2-1 útisigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.

Skagamenn voru mjög öflugir seinni hluta Íslandsmótsins og enduðu tímabilið með 29 stig, einungis fjórum stigum frá 4. sætinu.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  2 ÍA

„Ég er gríðarlega ánægður með þetta. Þrátt fyrir að við byrjuðum ekkert sérstaklega komum við vel inn í þetta undir lok fyrri hálfleiks og sýnum karakter í seinni hálfleik og siglum þessu heim. Gerum þriðja markið sem er að mínu mati löglegt, þannig að ég er mjög ánægður með þetta," sagði Gunnlaugur, en mark var dæmt af Skagamönnum.

Hann segir margt vera afar jákvætt við seinni hluta tímabilsins.

„Þetta er búin að vera gríðarlega flott seinni umferð hjá okkur, við höfum ekki tapað leik síðan í 16. umferð, við höfum sigrað þrjá leiki í röð. Þangað til að kom að þessum leik höfðum við haldið markinu hreinu fjóra leiki í röð þannig að það er margt jákvætt. Við myndum helst vilja að mótið haldi aðeins áfram," sagði Gunnlaugur, sem segir að Skagamenn hafi unnið réttu andstæðingana.

Hann sjálfur segir að hann verði áfram með liðið eftir tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner