Hermann Hreiðarsson þjálfari Fylkis var kampakátur með að leggja Íslandsmeistara FH á nýnefndum Floridanavellinum í Árbæ í dag.
"Þetta var frábær leikur hjá strákunum frá A til Ö. Við vorum grimmir og okkur langaði til að enda þetta með stæl"
"Þetta var frábær leikur hjá strákunum frá A til Ö. Við vorum grimmir og okkur langaði til að enda þetta með stæl"
Lestu um leikinn: Fylkir 3 - 2 FH
Hvernig metur Hemmi sumarið hjá Fylkismönnum?
"Þetta hefur verið aðeins upp og niður hjá okkur. Það sem skiptir máli er að við erum að stíga í rétta átt og það að enda á tveimur öflugum sigurleikjum á heimavelli sem ekki hefur verið að gerast of oft, þetta er eitthvað til að byggja á".
Búið er að tilkynna að Hermann mun þjálfa Fylkismenn áfram, sér hann fram á breytingar á leikmannahópnum á lengsta undirbúningstímabili Evrópu?
"Það verður eins og hjá flestum liðum, það verða einhverjar breytingar en það er góður kjarni í liðinu og ég er spenntur að vinna með þessum strákum. Það verður gaman að undirbúa liðið í allan vetur og koma endurnærður til leiks".
Nánar er rætt við Hermann í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir