Milos Milojevic, þjálfari Víkings, var léttur í bragði þrátt fyrir 5-2 tap gegn KR í dag. Víkingar voru án Igor Taskovic og bitnaði fjarvera hans gríðarlega á varnarleik liðsins.
Lestu um leikinn: KR 5 - 2 Víkingur R.
„Þeir refsuðu okkur grimmt fyrir okkar mistök og fá mark gefins og ætla ég að skoða í sjónvarpinu hvað var í gangi. Varnarleikurinn var ekki góður en mér fannst sóknarleikurinn mjög góður. Mig vantaði fleiri menn eins og Viktor Bjarka til að geta tekið eitthvað úr þessum leik.“
Leikurinn í dag skipti litlu máli þar sem bæði lið höfðu ekki um neitt að keppa og er Milos farinn að spá í næsta tímabil og ætlar sér að nota Viktor Jónsson sem hefur verið í láni hjá Þrótti. „Það er engin spurning. Viktor er okkar leikmaður og hefur æft með okkur í vikunni. Hann er mjög góður og beittur stiker og á eftir að hjálpa okkur mikið næsta sumar.“
Athugasemdir