lau 03. október 2015 22:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Ótrúlegt klúður Podolski fyrir opnu marki
Lukas Podolski
Lukas Podolski
Mynd: Getty Images
Ferill Lukas Podolski hefur legið niður á við síðustu ár, en hann spilar nú með Galatasaray í Tyrklandi eftir stutt stopp hjá Inter Milan.

Hann hefur byrjað ágætlega í Tyrkland og hefur hann skorað þrjú mörk í fyrstu sex deildarleikjunum.

Hann vill þó líklega helst gleyma atviki sem gerðist í leik gegn Istanbul Basaksehir í dag.

Eftir að hafa gert vel í að komast óséður inn í teiginn, fékk hann algjört dauðafæri fyrir opnu marki, en tókst á einhvern óskiljanlegan hátt að klúðra.

Podolski skoraði þó í leiknum, en þetta ótrúlega klúður má sjá hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner