Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 03. október 2015 17:01
Ívan Guðjón Baldursson
Sherwood: Leikmennirnir eru ekki í nægilega góðu formi
Mynd: Getty Images
Tim Sherwood er mjög ósáttur með gengi sinna manna í Aston Villa eftir tap gegn Stoke City á heimavelli.

Sherwood kennir slæmu líkamlegu ástandi um gengið og ætlar að koma leikmönnum sínum í betra form á næstu vikum.

„Ég er mjög vonsvikinn, við þurftum sigur á heimavelli. Við hefðum getað komist yfir Stoke í deildinni með sigri," sagði Sherwood eftir leik.

„Við nýttum ekki færin og það verðum við að bæta. Mér finnst að jafntefli hefði verið sanngjarnt, hvorugt liðið skaraði neitt sérstaklega framúr.

„Ástandið fer versnandi, staðreyndin er sú að okkur tekst ekki að sigra leiki sem við eigum að sigra og við erum rétt hjá botnsæti deildarinnar.

„Við erum allir í þessu saman en ég, sem knattspyrnustjórinn, tek alla ábyrgðina á mig.

„Ég mun nýta mér landsleikjahléð til að koma leikmönnunum í betra form. Þeir eru ekki í nægilega góðu formi til að spila eins og ég vill að þeir spili, fyrir suma verður þetta eins og styttri útgáfa af æfingatímabilinu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner