Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 03. október 2016 08:52
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Keflavíkur 
Sveindís Jane til Kristianstad á reynslu
Sveindís Jane í leik með Keflavík í sumar.
Sveindís Jane í leik með Keflavík í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Sveindís Jane Jónsdóttir, framherji Keflavíkur, fer í kvöld til Svíþjóðar þar sem hún verður á reynslu hjá Kristianstad í eina viku.


Með Sveindísi í för verða þjálfarar hennar hjá Keflavík, þeir Gunnar Magnús Jónsson og Haukur Benediktsson.

Hin 15 ára gamla Sveindís skoraði 22 mörk í 16 leikjum í 1. deild kvenna í sumar en hún er einn efnilegasti leikmaður landsins.

Þjálfari Kristianstad er Elísabet Gunnarsdóttir og Sif Atladóttir leikur með liðinu.

Alexandra Jóhannsdóttir úr Haukum verður einnig til reynslu hjá Kristianstad næstu vikuna eins og kom fram í gærkvöldi og Guðný Árnadóttir úr FH.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner