banner
   lau 03. desember 2016 23:11
Arnar Geir Halldórsson
Özil: Við lifðum af Arsenovember
Mynd: Getty Images
Mesut Özil, leikmaður Arsenal var sigurreifur eftir öruggan sigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Özil kom Arsenal á bragðið og í síðari hálfleik tók Alexis Sanchez leikinn yfir. Lokatölur 1-5 fyrir Arsenal.

„Ég er mjög ánægður með úrslitin. Við nýttum færin okkar vel og héldum áfram út allan leikinn," segir Özil.

Hann er ánægður með stöðu liðsins og talaði um að það væri léttir að hafa aflétt nóvember bölvun félagsins en Arsenal hefur oft gengið illa í nóvember. Í ár töpuðu þeir hinsvegar ekki einum deildarleik í nóvember.

„Við erum í góðri stöðu í titilbaráttunni og lifðum af hinn hræðilega "Arsenovember" án þess að tapa leik í deildinni og við erum fullir sjálfstrausts. Við þurfum að halda áfram að vinna og halda okkur við toppinn," segir Özil.
Athugasemdir
banner