Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 03. desember 2017 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Átta leikmenn framlengja við Víði Garði
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Átta leikmenn hafa framlengt samning sinn við Víði Garði síðustu daga.

Leikmennirnir sem umræðir eru: Björn Bergmann Vilhjálmsson, Pawel Grudzinski, Eyþór Guðjónsson, Aleksandar Stojkovic, Dejan Stamenkovic, Milan Tasic og bræðurnir, Arnór Smári Friðriksson og Patrekur Örn Friðriksson.

Dejan Stamenkovic er 27 ára kantmaður, hann var valinn besti leikmaður liðsins tímabilið 2017 og á að baki 44 leiki með Víði Garði á síðustu þremur árum, hann er því að hefja sitt fjórða tímabili með liðinu.

Efnilegasti leikmaðurinn tímabilið 2017 framlengdi við liðið það er Arnór Smári Friðriksson.

Víðir Garði var ekki langt frá því að fara upp um deild í sumar en 3. sætið var niðurstaðan hjá þeim í 2. deild.
Athugasemdir
banner
banner