Spænski varnarmaðurinn Sergio Ramos var rekinn af velli í markalausu jafntefli Atletic Bilbao og Real Madrid í gærkvöldi.
Fyrir leikinn deildi Sergio Ramos því með Xavi Aguado og Pablo Alfaro að hafa verið rekinn af velli 18 sinnum í spænsku deildinni.
Rauða spjaldið sem hann fékk í gær þýðir því að enginn leikmaður í sögu La Liga hefur fengið fleiri rauð spjöld en Sergio Ramos sem hefur nú fengið að sjá rauða spjaldið 19 sinnum.
Ramos fékk ekki beint rautt spjald í gær, hann fékk sitt fyrra gula spjald strax í upphafi leiks og það síðara undir lok leiks fyrir að fara með olnbogann í Aritz Aduriz.
19 - Sergio Ramos has been sent off more times than any other player in La Liga history. Mask. pic.twitter.com/sAfp1fzIwI
-- OptaJose (@OptaJose) December 2, 2017
Athugasemdir