Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. desember 2017 09:15
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho: Tveir af bestu markvörðum í heimi voru á vellinum
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho knattspyrnustjóri Manchester United hrósaði markverðinum David de Gea mikið eftir sigur Manchester liðsins á Arsenal í gær.

„Ég sagði honum (De Gea) eftir leikinn að það sem ég sá á vellinum í dag hafi verið besti markvörður í heimi. Þú þarft að hafa markvörðinn til staðar ef liðið þarfnast hans," sagði Mourinho.

Mourinho hélt áfram að hrósa De Gea en svo fékk Petr Cech einnig hrós.

„Hann (De Gea) átti frábærar vörslur en mér finnst Petr Cech einng hafa átt frábæra vörslu þegar hann varði frá Jesse (Lingard). Á vellinum voru saman komnir tveir af bestu markvörðum í heimi. Petr (Cech) á frábæra sögu í ensku úrvalsdeildinni, ég held að David (de Gea) muni eiga svipaða sögu," sagði Jose Mourinho að lokum um markverði liðanna.
Athugasemdir
banner
banner